Leita

Leita á vefsíðu

Veggklæðningar sem setja svip á bygginguna

Ytra byrði byggingar er það fyrsta sem fólk sér — og það síðasta sem á að þarfnast viðhalds. Hjá Áltaki færðu vandaðar veggklæðningar úr áli, kopar, sinki og einangruðum yleiningum sem standast íslenskt veðurfar og halda útliti sínu árum saman. Allt frá kasettuklæðningum yfir í klassíska báru — við hjálpum þér að velja réttu lausnina fyrir þitt verkefni.

Báruklæðningar

Áltak valsar báruklæðningar úr lituðu áli og ólituðu Aluzinki hér heima — sem þýðir styttri afgreiðslutíma, meiri sveigjanleika og klæðningu sem er hönnuð fyrir íslenskar aðstæður frá fyrstu plötu.

Formbeygðar

Formbeygðar klæðningar sameina einfaldleika og stílhreina hönnun og eru á sama tíma hagkvæmur kostur. Þær gefa byggingunni vandað yfirbragð og henta vel við íslenskar aðstæður.

Læstar álklæðingar

Klæðningarkerfi þar sem einingar læsast saman fyrir hreinan og öruggan frágang án sýnilegra festinga.

Sléttplötuklæðningar

Sléttplötuklæðning er einföld og sveigjanleg lausn. Hentar vel í minimalíska hönnun þar sem flöturinn fær að njóta sín. Hægt að skrúfa, hnoða eða líma klæðningu.

Panelklæðningar

Sveigjanleg lausn í mismunandi útfærslum. Hentar bæði í hefðbundnar og nútímalegar byggingar.

Koparklæðningar

Hágæða klæðning með einstaka ásýnd sem breytist með tíma. Sterkur karakter og langur líftími.

Kasettuklæðningar

Kasettuklæðning er úr sléttum álplötum sem festar eru á álundirkerfi. Plöturnar eru beygðar inn að gluggum og um úthorn og skapa þannig fágað útlit. Sýnilegar festingar eru hluti af reglulegu yfirbragði klæðningarinnar.

Læst sinkklæðning

Sinkklæðningar

Tímalaus klæðning með mikla endingu og náttúrulega áferð. Þróar fallega patínu með aldrinum.

Etalbond klæðningar

Áherslu á slétt yfirborð og nákvæman frágang. Vinsælar í atvinnu- og þjónustuhúsnæði.

Hafa samband

Þessi síða er vernduð af reCAPTCHA og persónuverndarstefna og þjónustuskilmálar Google gilda.