Leita

Leita á vefsíðu

Báruklæðningar

Áltak valsar báruklæðningar úr lituðu áli og ólituðu Aluzinki hér heima — sem þýðir styttri afgreiðslutíma, meiri sveigjanleika og klæðningu sem er hönnuð fyrir íslenskar aðstæður frá fyrstu plötu. Hvort sem verkefnið kallar á fíngerða línu eða kröftugt yfirbragð bjóðum við sex ólík form, fjölbreytt litaúrval og lengdir sniðnar að þínu húsi.

Hafa samband

Kápa sem endist vel

Bára gefur byggingum karakter og áratuga endingu með lágmarks viðhaldi. Álið ryðgar ekki og heldur útliti sínu í roki, rigningu og seltu. Sex form eftir útliti og áferð:

  1. Klassísk bára (18/76) — tímalaus og fjölhæf
  2. Micro bára (10/32) — fíngerð og nútímaleg
  3. Trapísa (26/143) — hreinar línur, kröftugt yfirbragð
  4. Stóra bára (28/128) og Tröllabára (55/177) — áberandi form fyrir stóra fleti
  5. Stölluð bára (33/175) — mjúk, lífræn hreyfing

Álið er 0,7 mm og fæst í öllum lengdum sem henta þér; flasningaefni í 0,7 / 1,0 / 2,0 mm. Afgreiðslutími er aðeins 2–4 dagar.

Litir í boði

Við bjóðum upp á fjölda af litum fyrir þínar þarfi. Staðlaðir litir í áli, og einnig svart og hvítt fyrir aluzink. Þá er einnig möguleiki að fá sérliti á ál í stærri verkefnum.

Athugið að litir á skjánum þínum eru líklega ekki nákvæmlega eins og litanúmerin segja til um.

Litir í boði

Gagnlegar upplýsingar

Tegund

Veggklæðning

Gerð

Báruklæðning

Undirgerð

Valsað ál og aluzink

Þykktir

0,7 mm / 1.0 mm / 2.0 mm

Skjöl


Báruklæðningar

báruklæðningar

PDF

Skoða nánar

Litir í boði

báruklæðningar

litir

pdf

Skoða nánar

Triple-S bára

triple-s

undirkerfi

pdf

Skoða nánar

Hafa samband

Þessi síða er vernduð af reCAPTCHA og persónuverndarstefna og þjónustuskilmálar Google gilda.