Kumlamýri 1–3
Formbeygð ASKJA klæðning í 17G6 með mattri áferð
Við Kumlamýri 1–3 reis nýbygging þar sem einföld form, nútímalegt yfirbragð og samræmt efnisval fá að njóta sín. Áltak kom að verkefninu með undirkerfi, efni og framleiðslu klæðningar, í samstarfi við Vistverk ehf. og K.J. Hönnun ehf.
Verkefni: Kumlamýri 1–3
Framkvæmdatími: 2025–2026
Verkkaupi: Vistverk ehf.
Hönnun: K.J. Hönnun ehf.
Klæðning: Formbeygð ASKJA klæðning
Litur: 17G6 NWS, mött áferð
Aðkoma Áltaks: Undirkerfi, efni og framleiðsla

Samræmt yfirbragð frá þaki að veggjum
Ein af áherslum verkefnisins var að skapa heildstætt yfirbragð byggingarinnar. Á veggjum var valin formbeygð ASKJA klæðning frá Áltaki en báruál á þaki. Með því að hafa bæði þak og veggklæðningu í sama 17G6 litnum næst sterk heild þar sem ólík form og áferðir vinna saman. Mött áferð litarins var sérstaklega valin af eigendum og gefur byggingunni fágað og nútímalegt yfirbragð.

Sveigjanleiki í útfærslu
Á bak við klæðninguna er Triple-S undirkerfi Áltaks. Vinklar kerfisins eru fáanlegir í mörgum dýptum sem gefur mikið svigrúm við hönnun og uppsetningu. Kerfið gerir þannig kleift að laga undirbygginguna að mismunandi aðstæðum án þess að gefa eftir í endanlegu útliti. Formbeygða ASKJA klæðningin er framleidd og afhent tilbúin frá Áltaki, sem stuðlar að nákvæmri og skilvirkri framkvæmd á verkstað.