
Sinkklæðningar á þök
Sink hefur verið notað til að klæða þök í aldaraðir og er þekkt fyrir ótrúlega endingu — almennt er talað um að endingartíminn sé að minnsta kosti hundrað ár. Á yfirborðinu myndast náttúruleg patína sem ver efnið og gefur því fallegan, náttúrulegan lit. Áltak býður VM ZINC® og veitir heildarlausn sem virkar fyrir íslenskar aðstæður.
Hafa sambandMálmur sem endist í heila öld
Sink er lifandi þakmálmur sem eldist fallega og fær náttúrulega áferð með tímanum. Það er auðvelt að forma í nánast hvaða form sem er, og fæst einnig forveðrað. Arkitektar og húseigendur hafa hrifist af eiginleikum sinksins í gegnum tíðina — enda verður sinkþak hluti af sögu og karakter byggingarinnar.
Kostir:
Framúrskarandi ending — endingartími almennt talinn a.m.k. 100 ár
VM ZINC® — hentar á öll þök, allt niður í 5° þakhalla
Náttúruleg patína — ver efnið og gefur fallegan, náttúrulegan lit
Sveigjanlegt — auðvelt að forma; fæst einnig forveðrað
Heildarlausn frá Áltaki — festingar, undirlag, teikningar, ráðgjöf og verklýsingar
Áltak hefur haldið námskeið fyrir blikksmiði í sinkklæðningum, svo mikil verkþekking í sinki er til í landinu, og er arkitektum og hönnuðum innan handar við allar útfærslur — í samstarfi við færustu hönnuði hjá VM ZINC®.
Sinkþök frá Áltaki er tímalaus eðalmálmur með endingu sem mælist í kynslóðum.
Gagnlegar upplýsingar
Tegund
Þakklæðning
Gerð
Sinkklæðning
Efnisgerð
Sink
Vörunúmer
WEB_THKL_SINK



Skjöl
Vefslóð framleiðanda
vmzinc